Hönnunarsprettur
Stokkur hefur boðið upp á hönnunarspretti til margra ára með frábærum árangri. Með þeirri aðferð hjálpum við viðskiptavinum að svara spurningum og taka ákvarðanir á 5 dögum sem annars gæti tekið marga mánuði. Hönnunarsprettirnir okkar hafa þróast mikið í gegnum árin en við aðlögum hvern og einn að kröfum viðskiptavina til að hámarka árangurinn og tryggja sameiginlega sýn á verkefnið.
Dagur 1: Fyrsta skrefið
Við byrjum á hugmyndavinnu þar sem áherslan er lögð á að allar hugmyndir séu lagðar fram, bæði grunnvirkni og framtíðarvirkni. Hér viljum við að hugmyndirnar flæði fram, sama hversu langsóttar þær kunna að vera. Við núllstillum okkur og hópurinn kynnist. Við setjum sameiginleg markmið og ákveðum hvað við viljum fá út úr sprettinum.
Dagur 2: Forgangsröðun
Við forgangsröðum hugmyndum til að fá sem besta mynd af því hvað fyrsta útgáfa af appinu/lausninni þarf að innihalda. Öll í teyminu fá tækifæri til að sýna sínu listrænu hæfileika við að teikna sínar hugmyndir að útliti appsins/lausnarinnar.
Dagur 3: Hönnun og skjölun
Starfsmenn Stokks hefjast handa við að skjala öll gögn frá fyrstu dögunum. Hönnuður okkar byrjar á frumgerð appsins/lausnarinnar, sem byggir á þeim gögnum sem liggja fyrir og umræðunum sem hafa átt sér stað.
Dagur 4: Notendaprófanir
Notendaprófanir eru framkvæmdar á frumgerðinni. Þessar notendaprófanir hafa undantekningarlaust skilað verðmætum athugasemdum sem mikilvægt er að taka tillit til áður en frekari þróun hefst. Með þessari nálgun sparast tími og kostnaður við hönnun og þróun.
Dagur 5: Umbætur og kynning
Á síðasta degi býður Stokkur þátttakendum hönnunarsprettsins á kynningu þar sem farið er yfir vikuna, niðurstöður og lærdóm. Við kynnum frumgerðina, niðurstöður notendaprófana og tillögur að umbótum út frá þeim. Svo fögnum við vel heppnuðum hönnunarspretti í lok dags!
Customer reviews
Here are reviews from our customers that have travelled through a Design sprint with Stokkur.
„Það er allt hægt“ ættu að að vera einkunnarorð Stokks. Með þau orð að leiðarljósi hófst spretturinn. Leiðarvísirinn var skýr en hvetjandi. Umgerðin fagleg og fumlaus og það fór ekki mínúta til spillis. Huggulegt umhverfi og vinalegt viðmót stokksliða skapaði traust og þægilegt vinnuumhverfi. Konfektið var gott kaffið enn betra og það var alltaf gaman.
Berglind Einarsdóttir, verkefnastjóri
Austurbrú